Verkefnið um þróun virðismatskerfis í þágu launajafnréttis er unnið á vettvangi faglegrar stjórnar í samræmi við samning fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Jafnlaunastofu þar að lútandi. Fagleg stjórn vinnur að gerð, prófun og mótun verklags um notkun nýs virðismatskerfis, sem á að tryggja að starfsfólk sem gegnir jafn verðmætum störfum njóti jafnra launa og kjara, óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum breytum.
Í allri vinnu er tekið mið af markmiðum um launajafnrétti, gæði opinberrar þjónustu og stefnumiðaðrar mannauðsstjórnunar í samræmi við lög, kjarasamninga og alþjóðlegar skuldbindingar. Verkefnið er samstarfsverkefni fulltrúa launagreiðenda og heildarsamtaka launafólks starfa hjá ríkinu og eru ákvarðanir teknar með einhug.

