Verkefnið um þróun virðismatskerfis í þágu launajafnréttis er unnið á vettvangi faglegrar stjórnar í samræmi við samning fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Jafnlaunastofu þar að lútandi og getur verið innlegg í mögulegar breytingar á kjarasamningum sem fjármála- og efnahagsráðherra gerir f.h. ríkissjóðs.
Fagleg stjórn vinnur að gerð, prófun og mótun verklags um notkun virðismatskerfisins með stuðningi frá Jafnlaunastofu. Unnin verða starfasnið fyrir valda starfahópa til að fanga inntak starfa og til þróunar og prófunar á kerfinu. Tryggja verður að störfin sem verða til grundvallar starfasniðana, og þróunar kerfisins, séu fjölbreytt og þvert á málaflokka ríkisins þar sem sérstök áhersla er lögð á að draga fram og meta þá þætti sem einkenna störf þar sem konur eru í meirihluta.
Verkefninu er skipt upp í fjóra meginhluta:
- Undirbúningur
- Gagnaöflun, starfagreiningar og starfasnið
- Þróun kerfis
- Prófun starfasniða
Afurð verkefnisins er fullbúið virðismatskerfi með skilgreiningum á þáttum og þrepum með hjálpartexta, ásamt spurningalista til að styðja við mat starfa. Virðismatskerfið á að tryggja að starfsfólk sem gegnir jafn verðmætum störfum njóti jafnra launa og kjara, óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum breytum sbr. lög nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði og lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Í allri vinnu er tekið mið af markmiðum um launajafnrétti, gæði opinberrar þjónustu og stefnumiðaðrar mannauðsstjórnunar í samræmi við lög, kjarasamninga og alþjóðlegar skuldbindingar. Verkefnið er samstarfsverkefni þar sem stjórnarfólk hefur jafnt vægi og ákvarðanir eru teknar með einhug.

