Fagleg stjórn vann starfsreglur sem voru samþykktar í október 2025. Þeim er ætlað að tryggja að verkefni um þróun virðismatskerfis byggi á árangursríku og faglegu samstarfi. Reglurnar eiga að setja skýr viðmið fyrir vinnuferlið og styðja þannig við afmörkun, skilvirkni og samræmingu í framkvæmd þess. Enn fremur miða þær að því að efla tryggð við verkefnið og virkja þátttöku alls stjórnarfólks, draga úr óvissu og lágmarka líkur á ágreiningi með því að skilgreina farveg til úrlausnar ágreiningsmála.
Verkefnastofa ríkisverkefnis
Starfsreglur og verkefnaáætlun
Hér er að finna starfsreglur og verkefnaáætlun faglegrar stjórnar virðismatskerfis ríkis (FSVR)
Verkefnaáætlun faglegrar stjórnar var samþykkt í desember 2025. Hún útskýrir forsendur verkefnisins, afmörkun og hvaða afurðir eiga að koma út úr því. Hún tiltækir einnig hver ber ábyrgð á hvaða verkþáttum, sem skiptast niður á fjóra megináfanga. Verklok eru áætluð í lok árs 2026.
Athugið að verkefnaáætlunin getur tekið breytingum.
Verkefnaáætlun FSVR

