Verkefnastofa ríkisverkefnis

Um spurningakönnunina
og virðismat

Svörun spurningalistans

Hvað er virðismatskerfi?

Spurt og svarað

Tilgangur spurningalistans er að safna upplýsingum um inntak starfsheita. Niðurstöðurnar munu nýtast við gerð starfasniða og þróun virðismatskerfis fyrir störf hjá ríkinu.

Þú færð spurningalistann sendan í tölvupósti og hefur tvær vikur til að svara honum. Þú þarft ekki að klára allt í einni lotu; þú getur vistað svörin og haldið áfram síðar þegar þér hentar.

Við áætlum að svörun spurningalistans taki um 90 mínútur, en tímalengdin getur verið mismunandi eftir einstaklingum.

Svörin verða nýtt ásamt öðrum gögnum, til dæmis starfslýsingum, til að dýpka skilning á inntaki starfa, móta starfasnið og þróa virðismatskerfi. Markmiðið er að nýtt kerfi leggi mat á störfin á hlutlægan og málefnalegan hátt.

Aðeins starfsfólk verkefnastofu ríkisverkefnisins á Jafnlaunastofu hefur aðgang að svörum þínum. Öryggi gagna er tryggt með viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum, þar á meðal aðgangsstýringu og dulkóðun svara. Engar persónugreinanlegar upplýsingar verða birtar eða miðlað til þriðja aðila.

Nei, stjórnandinn þinn mun ekki hafa aðgang að svörunum þínum.

Þú valdist í úrtak út frá starfsheitinu sem þú ert í. Til að þjóna markmiði verkefnisins þótti mikilvægt að fá fjölbreyttan hóp þátttakenda til að svara spurningalistanum. Við val á þátttakendum var því tveimur úrtaksaðferðum beitt: annars vegar slembiúrtaki og hins vegar tilgangsúrtaki. Allir þátttakendur eru með upplýsingar um úrtakið sem þau voru valin í.

Slembiúrtakið fór fram með þeim hætti að ákveðinn fjöldi þátttakenda var valinn tilviljanakennt út frá x. Tilgangsúrtak fór þannig fram að viðeigandi stéttarfélög tilnefndu ákveðinn fjölda þátttakenda til að svara spurningalistanum.

Til að þróa virðismatskerfi sem nær vel utan um störf hjá ríkinu þurfum við að öðlast dýpri innsýn í störfin. Svör þín, ásamt svörum annarra þátttakenda, varpa ljósi á mikilvæg atriði sem koma ekki alltaf fram í formlegum starfslýsingum, því enginn þekkir störfin betur en þau sem sinna þeim daglega.

Nei, þátttaka er valkvæð og þú getur hætt þátttöku hvenær sem er, án þess að þurfa að gefa upp ástæðu.

Já, þú getur alltaf dregið samþykki þitt til baka og hætt þátttöku.

Nei, ekki er um að ræða mat á frammistöðu eða eiginleikum starfsfólks. Það er einungis verið að afla upplýsinga um störfin sjálf, hvað þau fela í sér og hvaða kröfur þau gera, óháð því hver sinnir starfinu.

Spurningalistinn er hluti af þróunarverkefninu við að búa til virðismatskerfi, en aðilar munu alltaf þurfa að semja formlega um upptöku og notkun þess í kjarasamningum.

Spurningalistanum er skipt í fimm kafla, þar sem spurningar eru flokkaðar í undirflokka. Kaflarnir afla upplýsinga um þá þekkingu og færni sem starfið krefst, þá ábyrgð sem því fylgir, álagstengda þætti og vinnuumhverfið sem starfið er unnið í. Að lokum er spurt um bakgrunn þátttakendafólks, til dæmis kyn, aldur og menntun, og um vinnustaðinn sem starfið er unnið í, svo sem stærð og staðsetningu.

Könnunin og úrvinnsla hennar fer fram í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 90/2018. Spurt er um almennar persónuupplýsingar, svo sem kyn og aldur, og upplýsingar um starf og vinnustað, til dæmis starfsheiti og fjölda starfsfólks á starfsstöð. Þessar upplýsingar eru eingöngu aflaðar í þeim tilgangi að greina störf, starfsaðstæður og álagstengda þætti.

Spurningalistinn er í þessari fyrstu fyrirlögn eingöngu á íslensku, en verður síðar þýddur á ensku.

Virðismatskerfi í þágu launajafnréttis er kerfisbundin nálgun til að tryggja að störf séu metin á málefnalegan og hlutlægan hátt. Þetta byggir á greiningu á raunverulegu inntaki starfa og faglegum gögnum. Útkoman er öflugt tæki til að tryggja jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf, leiðrétta kerfisbundnar skekkjur og byggja upp traust, gagnsæi og jafnræði á vinnumarkaði.

Virðismatskerfi nýtast sérstaklega við að greina þætti sem oft eru vanmetnir, svo sem tilfinningalegt álag, samskiptakröfur eða ábyrgð á velferð annarra.

Sjálfsagt. Þú getur fundið allar upplýsingar um verkefnið með því að smella hér eða horfa á myndbandið hér að ofan.

Þér er ávallt velkomið að hafa samband við verkefnastofu ríkisverkefnis hjá Jafnlaunastofu í síma 415-4990 eða með tölvupósti á virdismat.riki@jafnlaunastofa.is. Við hvetjum þig einnig til að hafa samband ef einhverjar spurningar í spurningalistanum eru óljósar.

Ertu að leita að einhverju sérstöku?

Ekki hika við að hafa samband!